153. löggjafarþing — 27. fundur
 8. nóvember 2022.
Frestun á skriflegum svörum.
yfirráð yfir kvóta, fsp. GRÓ, 316. mál. — Þskj. 326.
búsetuúrræði umsækjenda um alþjóðlega vernd, fsp. ÁsF, 283. mál. — Þskj. 286.
afmörkun hafsvæða, fsp. AIJ, 340. mál. — Þskj. 352.
fósturlát og framköllun fæðingar eða útskaf úr legi, fsp. LRS, 288. mál. — Þskj. 291.
meðferð vegna átröskunar, fsp. ESH, 331. mál. — Þskj. 343.
útboð innan heilbrigðiskerfisins, fsp. DME, 285. mál. — Þskj. 288.
skaðaminnkun, fsp. DME, 284. mál. — Þskj. 287.
útvistun aðgerða vegna of langs biðtíma, fsp. HKF, 282. mál. — Þskj. 285.
niðurgreiðsla Sjúkratrygginga Íslands á aðgerðum vegna skarðs í vör, fsp. GHaf, 335. mál. — Þskj. 347.

[13:31]
Forseti (Líneik Anna Sævarsdóttir):
Bráðabirgðaútgáfa.

Forseta hefur borist bréf frá matvælaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 326, um yfirráð yfir kvóta, frá Gísla Rafni Ólafssyni. Einnig hefur borist bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 286, um búsetuúrræði umsækjenda um alþjóðlega vernd, frá Ásmundi Friðrikssyni.

Þá hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 352, um afmörkun hafsvæða, frá Andrési Inga Jónssyni.

Að lokum hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 285, um útvistun aðgerða vegna of langs biðtíma, frá Hönnu Katrínu Friðriksson, á þskj. 287, um skaðaminnkun, og á þskj. 288, um útboð innan heilbrigðiskerfisins, báðar frá Diljá Mist Einarsdóttur, á þskj. 291, um fósturlát og framköllun fæðingar eða útskaf úr legi, frá Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttir, á þskj. 343, meðferð vegna átröskunar, frá Evu Sjöfn Helgadóttur.

Að lokum á þingskjali 347, um niðurgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands á aðgerðum vegna skarðs í vör, frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur.