153. löggjafarþing — 52. fundur
 16. desember 2022.
frestun á fundum Alþingis , ein umræða.
stjtill., 587. mál. — Þskj. 861.

[16:33]
forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):
Bráðabirgðaútgáfa.

Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til að fresta fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan er svohljóðandi:

„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 16. desember 2022 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 23. janúar 2023.“

Tillagan skýrir sig sjálf.