153. löggjafarþing — 74. fundur
 7. mars 2023.
tekjuskattur, 1. umræða.
frv. VilÁ o.fl., 164. mál (heimilishjálp). — Þskj. 165.

[17:59]
Flm. (Vilhjálmur Árnason) (S):
Bráðabirgðaútgáfa.

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og fjallar þetta frumvarp um heimilishjálp. Flutningsmenn ásamt þeim sem hér stendur eru Óli Björn Kárason, Diljá Mist Einarsdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Guðrún Hafsteinsdóttir. Þetta er í þriðja sinn sem málið er flutt og hefur tvisvar komið áður en ekki náð fram að ganga.

Með frumvarpi þessu er lögð til heimild til skattalegs frádráttar vegna heimilishjálpar sem felur í sér að draga má fjárhæð að hámarki 1.800.000 kr. á ári frá tekjuskattsstofni einstaklings, þ.e. sem nemur að meðaltali 150.000 kr. á mánuði. Það mætti sem sagt kaupa sér einhvers konar heimilishjálp fyrir allt að 150.000 kr. á mánuði til frádráttar tekjuskatts.

Frádrættinum er ætlað að ná til starfa sem innt eru af hendi hér á landi á heimili einstaklings og í sumarbústað þar sem einstaklingur dvelur. Sama á við um slík störf í bílskúr og geymslum, afmörkuðum garði og í innkeyrslu umhverfis heimili eða sumarbústað einstaklings. Til slíkra starfa teljast t.d. hefðbundin heimilisstörf, svo sem þrif og hreingerningar, hefðbundin garðyrkjustörf eða snjómokstur á gangstéttum og í innkeyrslu að heimili. Þegar húsfélag fjöleignarhúss annast greiðslu kostnaðar úr sameiginlegum sjóði vegna slíkra starfa á sameign getur einstaklingur dregið sinn hlut í þeim kostnaði frá tekjuskattsstofni sínum. Þá er ákvæðinu jafnframt ætlað að ná til annars konar umönnunar, svo sem umönnunar heimilismanna vegna veikinda eða fötlunar, umönnunar barna, sem felur m.a. í sér aðstoð við heimavinnu og fleira skólatengt, ásamt því að fylgja börnum í og úr leikskóla, skóla og frístundastarfi. Ákvæðinu er einnig ætlað að taka til aðstoðar við einstakling í tengslum við ferðir til og frá heimili, t.d. ferðir á heilsugæslustöð, í banka eða annað sambærilegt.

Markmiðið með frumvarpi þessu er m.a. að sporna við svartri atvinnustarfsemi auk þess sem hægt verður að auka réttindi þess fólks sem vinnur í dag þau störf sem hér eru talin. Með því er m.a. átt við lífeyrisgreiðslur og atvinnuleysisbætur.

Flutningsmenn telja að með lögfestingu skattafrádráttar vegna aðkeyptrar heimilishjálpar sé komið til móts við einstaklinga og fjölskyldur, einkum barnafjölskyldur, með margvíslegum hætti. Þá mun breytingin einnig gagnast eldri borgurum sem vilja búa áfram á eigin heimili en þurfa á þjónustu að halda við almenn heimilisþrif og önnur létt heimilisstörf.

Sambærilegar heimildir til skattalegs frádráttar er m.a. að finna í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi þó að útfærslan sé misjöfn eftir löndum. Árið 2011 gerðu sænsk skattyfirvöld könnun á áhrifum frádráttarins. Hún leiddi í ljós að svört starfsemi, en undir þá skilgreiningu fellur m.a. vinna við heimilishjálp, hefði minnkað um 10% á milli áranna 2005 og 2011. Sambærilega sögu er að segja frá Danmörku en dönsk skattyfirvöld hafa fengið fleiri tilkynningar frá almenningi um svarta atvinnustarfsemi eftir að hægt var að draga frá tekjuskattsstofni á þessum grundvelli.

Við flutningsmenn teljum að hér sé mál sem hefur margþætt, jákvæð áhrif í för með sér og teljum gríðarlega mikilvægt að það nái fram að ganga. Það er mikilvægt að draga úr svartri atvinnustarfsemi. Það er mjög mikilvægt að það fólk sem starfar við hin ýmsu störf, eins og ég hef farið yfir hér, geti skapað sér einhvers konar réttindi, komi eitthvað upp á í þessum störfum eða hjá þeim. Í þriðja lagi getur þetta aukið frelsi og létt undir með svo mörgum, getur fjölgað gæðastundum innan fjölskyldna, getur veitt þeim sem eiga erfitt með hreyfigetu og annað slíkt aukið frelsi og svigrúm og lengi mætti telja. Leggjum við því til að þetta verði unnið hratt og vel með von um að Alþingi afgreiði þetta hið fyrsta.



Frumvarpið gengur til 2. umr. 

Frumvarpið gengur til efh.- og viðskn.