153. löggjafarþing — 103. fundur
 8. maí 2023.
staðfesting kosningar.

[15:02]
Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):
Bráðabirgðaútgáfa.

Hæstv. forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu Vilborgar Kristínar Oddsdóttur sem 3. varaþingmanns á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosningu og kjörgengi og mælir einróma með staðfestingu kosningar Vilborgar Kristínar Oddsdóttur.