153. löggjafarþing — 116. fundur
 5. júní 2023.
lengd þingfundar.

[15:02]
Forseti (Birgir Ármannsson):
Bráðabirgðaútgáfa.

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en hvað þingsköp kveða á um. Er óskað atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? Svo er ekki og verður því þingfundur lengdur eitthvað fram yfir það sem þingsköp kveða á um.