153. löggjafarþing — 118. fundur
 7. júní 2023.
Frestun á skriflegum svörum.
staða einstæðra foreldra á endurhæfingarlífeyri, fsp. VKO, 1069. mál. — Þskj. 1759.
staða barna þegar foreldri fellur frá, fsp. VilÁ, 1058. mál. — Þskj. 1730.

[11:17]
Forseti (Birgir Ármannsson):
Bráðabirgðaútgáfa.

Borist hafa bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1759, um stöðu einstæðra foreldra á endurhæfingarlífeyri, frá Vilborgu Kristínu Oddsdóttur og á þskj. 1730, um stöðu barna þegar foreldri fellur frá, frá Vilhjálmi Árnasyni.