150. löggjafarþing — 105. fundur,  19. maí 2020.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2019 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

704. mál
[14:08]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir stuttu nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2019 sem fjallar um breytingu á viðauka er varðar fjármálaþjónustu.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Ernu Hjaltested frá fjármála- og efnahagsráðuneyti. Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2019, um breytingu á IX. viðauka um fjármálaþjónustu við EES-samninginn, og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins frá 14. nóvember 2018 er varðar breytingu á reglugerð nr. 1093/2010 að því er varðar aðsetur Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar.

Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála og nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Undir þetta nefndarálit skrifa hv. þingmenn Sigríður Á. Andersen, Álfheiður Eymarsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, sú sem hér stendur, Gunnar Bragi Sveinsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Logi Einarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.