150. löggjafarþing — 105. fundur, 19. maí 2020.
dómstólar o.fl.
470. mál
Virðulegi forseti. Ég styð þetta mál og ég skrifaði undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar þar um, þó með þeim fyrirvara að ég hefði viljað sjá þarna inni gjafsóknarmöguleika til handa því fólki sem er að sækja rétt sinn til íslenskra dómstóla í málum sem hefur verið snúið við af Mannréttindadómstól Evrópu.