almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður).
Tekið er fyrir eina dagskrármálið, almennar stjórnmálaumræður, sem er útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu.
Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri og fimm mínútur í síðustu umferð. Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins.
Fyrir Miðflokkinn talar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 3. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, Anna Kolbrún Árnadóttir, 8. þm. Norðaust., í annarri og í þeirri þriðju Þorsteinn Sæmundsson, 10. þm. Reykv. s.
Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru: Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra, og í þriðju umferð Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurk.
Fyrir Samfylkinguna tala í fyrstu umferð Logi Einarsson, 5. þm. Norðaust., í annarri Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurk., og í þeirri þriðju Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 3. þm. Suðvest.
Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 7. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, Lilja Rafney Magnúsdóttir, 3. þm. Norðvest., í annarri og í þeirri þriðju Steingrímur J. Sigfússon, 2. þm. Norðaust.
Ræðumenn Pírata eru í fyrstu umferð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þm. Reykv. s., í annarri Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykv. n., og Andrés Ingi Jónsson, 9. þm. Reykv. n., í þriðju umferð.
Ræðumenn Framsóknarflokksins eru: Willum Þór Þórsson, 9. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Halla Signý Kristjánsdóttir, 7. þm. Norðvest., í annarri og í þeirri þriðju Þórarinn Ingi Pétursson, 4. þm. Norðaust.
Fyrir Viðreisn talar í fyrstu umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðvest., í annarri Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvest., og í þeirri þriðju Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 7. þm. Reykv. n.
Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 8. þm. Reykv. s. í fyrstu og þriðju umferð, og Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þm. Suðvest., í annarri umferð.