132. löggjafarþing — 117. fundur, 30. maí 2006.
Störf iðnaðarnefndar, þinghaldið fram undan o.fl.
Forseta finnst ástæða til að árétta, vegna orða hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar um að forseti hafi ekki fundað með fulltrúum allra þingflokka, að hv. þingmaður, sem fulltrúi Frjálslynda flokksins, kom á fund formanna þingflokka þegar honum var að ljúka í dag. Formenn allra þingflokka voru boðaðir á þann fund. (SigurjÞ: … þegar dagskrá lá fyrir.)