þingfrestun.
Forseti Íslands gjörir kunnugt:
„Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 143. löggjafarþings, frá 16. maí 2014 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 9. september 2014.
Gjört á Bessastöðum, 14. maí 2014.
Ólafur Ragnar Grímsson.
___________________________
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“
Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég yfir því að fundum Alþingis, 143. löggjafarþings, er frestað.
Ég færi hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins þakkir fyrir gott samstarf á liðnum vetri og óska þeim og landsmönnum öllum gleðilegs sumars.