145. löggjafarþing — 124. fundur, 2. júní 2016.
veiting ríkisborgararéttar.
801. mál
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi allsherjar- og menntamálanefndar um veitingu ríkisborgararéttar.
Að þessu sinni bárust til nefndarinnar 56 umsóknir, en við leggjum til að 30 einstaklingum verði veittur ríkisborgararéttur og liggur sá nafnalisti fyrir.