150. löggjafarþing — 129. fundur, 29. júní 2020.
aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og skráning raunverulegra eigenda.
709. mál
Herra forseti. Ég var með fyrirvara á nefndaráliti meiri hlutans í þessu annars ágæta máli og fyrirvarinn var einmitt út af þessari breytingartillögu meiri hlutans. Við í Samfylkingunni erum sammála því að taka út úr lögunum heimild til undanþágu með afar óskýrum viðmiðum. Við erum sem sagt sammála hæstv. ráðherra en við greiðum atkvæði á móti tillögu meiri hlutans.