131. löggjafarþing — 13. fundur, 20. okt. 2004.
Fyrirkomulag utandagskrárumræðu.
[16:14]
Halldór Blöndal (S):
Herra forseti. Það er óvenjulegt að ég kveðji mér hljóðs um fundarstjórn forseta en ástæðan er sú að ég hef þrásinnis rætt það á fundum með formönnum þingflokka að eigi skuli beina fyrirspurnum í utandagskrárumræðum til annarra ráðherra en þess sem verður fyrir svörum hverju sinni. Ég vil minna þá á það að gefnu tilefni í lok þessarar umræðu.