145. löggjafarþing — 133. fundur, 16. ág. 2016.
vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.
Með bréfum, dagsettum 23. júní 2016, hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um eftirfarandi skýrslur Ríkisendurskoðunar:
Verktakagreiðslur hjá Fasteignaskrá, Innkaupastefnu ráðuneyta, Eftirlit Tryggingastofnunar með bótagreiðslum og Stuðning við atvinnu- og byggðaþróun.