140. löggjafarþing — 14. fundur, 20. okt. 2011.
stjórnarskipunarlög.
43. mál
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa ágætu umræðu. Hún hefur verið töluvert lýsandi og er gott veganesti í þá nefnd sem fær þetta. Ég tók til máls til að mælast til þess að málinu yrði vísað til hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og vonast til að það fái þar mikla og góða umfjöllun og ef mönnum sýnist svo getur sú nefnd lagt til að það verði samþykkt.