139. löggjafarþing — 148. fundur, 10. júní 2011.
verslun með áfengi og tóbak.
703. mál
Hæstv. forseti. Ég styð að sjálfsögðu þessar greinar eins og þær liggja fyrir. Ég vil benda á að rétt sé að vinna síðan áfram með markmiðsgreinina, 2. gr., og jafnvel setja nýja grein þannig að markmiðið nái einnig yfir tóbaksvörur. Tel ég rétt að huga að því strax á næsta þingi.