139. löggjafarþing — 166. fundur, 17. sept. 2011.
virðisaukaskattur o.fl.
898. mál
Virðulegi forseti. Hér er aðeins um að ræða smávægilegar tæknilegar breytingar sem varða tollflokka og gildistöku að öðru leyti. Hér er að verða að lögum skattalækkun á rafræna útgáfu bóka og tónlistar til að greiða fyrir rafbókavæðingu á Íslandi og skapa góð almenn skilyrði fyrir skapandi greinar í landinu. Ég þakka fyrir góða samvinnu um framgang málsins.