137. löggjafarþing — 19. fundur, 15. júní 2009.
framlagning mála ríkisstjórnarinnar, dagskrá þingsins o.fl.
Forseti vill ítreka það sem hæstv. fjármálaráðherra gat um í umræðu fyrr á þessum fundi að hann gerði ráð fyrir að þingmál um ríkisfjármálin mundi koma inn í þingið í þessari viku, og að forseti telur sjálfsagt að þingmenn fái þær upplýsingar sem þeir þurfa til að geta tekið upplýstar ákvarðanir í þinginu.