141. löggjafarþing — 21. fundur, 18. okt. 2012.
Stjórnarráð Íslands.
248. mál
Virðulegi forseti. Það var ýmislegt sagt þegar lögin voru samþykkt í upphafi. Þá lágu ekki fyrir úttektir fræðimanna, þær liggja fyrir núna. Mér finnast það rétt vinnubrögð að lesa slíkar úttektir, síðan tek ég ákvörðun. Stundum er ég ekki sammála, stundum er ég sammála. Núna er ég sammála og líka meiri hluti nefndarinnar.