152. löggjafarþing — 3. fundur, 2. des. 2021.
kosning eins aðalmanns og eins varamanns í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins skv. 35. gr. þingskapa.
Á þingsetningarfundi í gær láðist að tilnefna sjötta aðalmanninn og varamanninn í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins. Forseta hefur borist tillaga um Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur sem aðalmann og Guðbrand Einarsson sem varamann. Skoðast sú tillaga samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.