145. löggjafarþing — 39. fundur, 24. nóv. 2015.
alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands o.fl.
91. mál
Virðulegi forseti. Ég hef svarað því hér að eftirlitið verði í rauninni með sama hætti og það er í núgildandi lögum, þ.e. hjá Ríkisendurskoðun, óháðum aðilum, alþjóðlegum aðilum þegar við erum með alþjóðleg verkefni o.s.frv. Hv. þingmaður þarf því ekki að óttast að eftirlitið verði lakara en í dag. Ráðuneytið er sjálft að sjálfsögðu alltaf hreint undir eftirliti.