Fyrirkomulag fjárlagaumræðu.
Í dag verður fram haldið 1. umr. um fjárlög fyrir árið 2014 með því að fagráðherrar taka þátt í umræðunni. Í lok umræðunnar mun fjármála- og efnahagsráðherra taka til máls. Rösklega ein klukkustund er áætluð fyrir hvern ráðherra og umræður um málaflokk hans. Röð ráðherranna verður: starfandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og starfandi umhverfis- og auðlindaráðherra, þ.e. hæstv. utanríkisráðherra, heilbrigðisráðherra, utanríkisráðherra, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra, innanríkisráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra. Mun fjármála- og efnahagsráðherra svo ljúka umræðunni síðar í dag. Málið gengur síðan til fjárlaganefndar að því loknu.
Hefst nú umræðan. Ráðherrar hafa sex mínútur í fyrsta sinn og síðan tvær mínútur hverju sinni. Þingmenn hafa þrjár mínútur í fyrra sinn og tvær mínútur í seinna sinn. Andsvör eru ekki leyfð.