148. löggjafarþing — 44. fundur, 23. mars 2018.
kosningar til sveitarstjórna.
40. mál
Virðulegi forseti. Mig fýsir líka að vita, því nú liggur fyrir mjög afdráttarlaus skoðun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga á framgangsmátanum á þessu máli og pólitískur bakgrunnur hv. þingmanns er í sveitarstjórnum. Finnst hv. þingmanni sú röksemd ekki duga til þess að þetta mál beri ekki að afgreiða með þeim hætti eins og það ber að í þinginu núna?