141. löggjafarþing — 44. fundur, 3. des. 2012.
tilkynning um skrifleg svör.
Forseti tilkynnir að borist hefur bréf frá innanríkisráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 335 annars vegar, um fulltrúa sýslumanns á Patreksfirði, frá Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórsdóttur, og hins vegar á þskj. 361, um rannsókn og saksókn kynferðisbrota, frá Kristjáni Þór Júlíussyni. Ástæður tafa eru umfang fyrirspurna og ósk innanríkisráðherra eftir fresti til 15. desember nk. til að svara þeim.