144. löggjafarþing — 45. fundur, 10. des. 2014.
fjárlög 2015.
1. mál
Hæstv. forseti. Ég kem hér upp bæði sem landsbyggðarþingmaður og einnig sem íbúi á köldu svæði. Undir þessum lið langar mig til að fagna þeirri aukningu sem kemur þarna inn til niðurgreiðslu á húshitunarkostnaði en einungis um 10% þjóðarinnar búa ekki við þær aðstæður að geta hitað upp íbúðarhúsnæði sitt með jarðhita. Ég tel þessa aukningu mjög góða og fagna henni.