Stjórnarráð Íslands.
Hæstv. forseti. Ég vildi nota tækifærið til að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún gæti gefið okkur aðeins nákvæmari tímasetningu á því hvenær vænta má tillögu til þingsályktunar um breytingu á ráðuneytaskipaninni eins og hún vék að í máli sínu. Hún nefndi þetta ekki í efnislegum tengslum við ákvæði þessa frumvarps sem slíks, en fyrst hæstv. forsætisráðherra vék að því að þessi þingsályktunartillaga væri í bígerð væri upplýsandi fyrir þingmenn ef hún gæfi aðeins nákvæmari tímasetningu á því hvenær megi vænta slíkrar tillögu.