141. löggjafarþing — 48. fundur, 6. des. 2012.
fjárlög 2013.
1. mál
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra Steingrímur J. Sigfússon sagði að ekki hefði verið rætt um stóru myndina.
Hann sagði: Hallinn á ríkissjóði er horfinn.
Hallinn á ríkissjóði er horfinn, sagði hæstv. ráðherra, en hið rétta er að hallinn á ríkissjóði er horfinn undir teppið. Það er stóra myndin.