150. löggjafarþing — 49. fundur,  20. jan. 2020.

staðan í stjórnmálunum í byrjun árs og verkefnin fram undan.

[16:12]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar sem gerir ráð fyrir að formenn allra stjórnmálaflokka, eða staðgenglar þeirra, taki til máls og hafi til þess tíu mínútur hver, nema þingmaður utan þingflokka sem hefur þrjár mínútur. Andsvör verða leyfð og gilda rýmri reglur þannig að allir stjórnarandstöðuflokkar eigi þess kost að veita andsvör við ræðum stjórnarliða.

Röð flokkanna verður eftirfarandi: Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Miðflokkurinn, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn, Flokkur fólksins og þingmaður utan þingflokka.