144. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2014.

hafnalög.

5. mál
[17:12]
Horfa

innanríkisráðherra (Hanna Birna Kristjánsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003, með síðari breytingum. Frumvarpið byggir á tillögum starfshóps um endurskoðun hafnalaga sem falið var að endurskoða hafnalögin til að styrkja rekstrargrundvöll hafna og gera þeim kleift að aðlagast breyttri notkun.

Frumvarp þetta var flutt af þeirri sem hér stendur á 143. löggjafarþingi, fyrr á þessu ári, og gekk eftir 1. umr. til hv. umhverfis- og samgöngunefndar. Hv. umhverfis- og samgöngunefnd tók frumvarpið fyrir á sjö fundum og skilaði nefndaráliti þann 14. maí sl. Nefndin gerði nokkrar breytingar á frumvarpinu og ég vil taka sérstaklega fram að við framlagningu þess nú hefur að flestu leyti verið tekið tillit til þeirra breytingartillagna.

Markmið frumvarpsins er þannig fyrst og fremst að bregðast við fjárhagsvanda hafna og styðja betur við endurnýjun hafnarmannvirkja, en einnig eru aðrar breytingar gerðar. Meðal þeirra eru ákvæði um neyðarhafnir og um heimild ríkissjóðs til að eiga og reka mannvirki vegna ferja.

Hafnir landsins búa, eins og þingheimur þekkir, sumar við bágan rekstrargrundvöll og eiga erfitt með að bæta afkomu sína, þ.e. auka tekjur eða deila kostnaði af rekstri með því að finna samlegð með öðrum rekstri. Reynslan bendir til að hafnarsjóðir séu of margir og eftir atvikum of smáir til að geta staðið undir rekstri og nauðsynlegri fjárfestingu. Erfitt er að sjá fyrir hvenær allir hafnarsjóðir verða færir um að standa undir nauðsynlegri fjárfestingu, en þangað til þarf að skapa þeim forsendur til að takast á við eðlilegan rekstur og nauðsynlegar fjárfestingar.

Með aukinni samhæfingu, raunhæfara mati á arðsemi nýframkvæmda og forgangsröðun verkefna innan stærri heildar standa efni til þess að fleiri hafnir geti ráðið við verkefni sín án stuðnings ríkissjóðs, a.m.k. með minni stuðningi en nákvæmlega nú.

Virðulegur forseti. Þær breytingar sem snúa að fjárhagsvanda hafna eru helst eftirfarandi:

Í fyrsta lagi er lagt til að eigendur hafna geti gert með sér samning um samrekstur einstakra þátta í starfsemi hafna í stað þess að samstarfið taki til starfseminnar í heild í formi hafnasamlags. Heimild til stofnunar hafnasamlags er þó enn fyrir hendi.

Í öðru lagi er lagt til að kveðið verði sérstaklega á um þá hagsmuni og þau sjónarmið sem leggja ber til grundvallar við tillögugerð og forgangsröðun framkvæmda í samgönguáætlun.

Loks er í þriðja lagi lagt til að ákvæðum hafnalaga um ríkisstyrki verði breytt. Þær breytingar fela helst í sér skýrari skilgreiningar á formi ríkisstyrkja. Þó er rétt að taka fram að ekki er um að ræða auknar fjárhæðir úr vasa ríkisins umfram það sem þegar er ákveðið í fjárlögum.

Þau verkefni sem lagt er til að ríkissjóður geti styrkt samkvæmt fyrirliggjandi frumvarpi eru flokkuð í fimm þætti:

Endurbyggingu og endurbætur á skjólgörðum og dýpkun þar sem reglulegrar viðhaldsdýpkunar er þörf. Greiðsluþátttaka ríkissjóðs fyrir þessi verkefni verður allt að 85% samkvæmt umræddu frumvarpi.

Endurbygging og endurbætur á bryggjum og niðurrif hafnarmannvirkja sem þarf að fjarlægja vegna slysahættu er annar þáttur sem lagt er áhersla á að styrkja í þessu frumvarpi. Með frumvarpinu er lagt til að greiðsluþátttaka ríkissjóðs í þessum verkefnum verði allt að 75%.

Í þriðja lagi eru sett skýrari skilyrði fyrir styrkjum vegna nýframkvæmda við bryggjugerð, skjólgarða og dýpkun í innsiglingu og innan hafnar, stofnkostnað við hafnsögubáta á stöðum þar sem aðstæður í höfn og nágrenni hennar kalla á slík öryggistæki og innsiglingarmerki, svo og löndunarkrana og hafnarvogir. Gera skal grein fyrir nauðsyn og arðsemi þessara framkvæmda og liggja þarf fyrir staðfesting á að höfn hafi skilað jákvæðum rekstrarafgangi að teknu tillit til vaxta. Með frumvarpinu er lagt til að greiðsluþátttaka ríkissjóðs verði allt að 60%. Heimild þessi tekur þó ekki til framkvæmda í þágu einstakra fyrirtækja þar sem gerður er sérstakur afnotasamningur til lengri tíma.

Í fjórða lagi eru það aðgerðir eiganda hafnar sem miða að því að hætta eða draga úr hefðbundnum hafnarrekstri. Lagt er til að greiðsluþátttaka ríkissjóðs geti samkvæmt sérstöku samkomulagi numið allt að 60% af neikvæðu eigin fé hafnar.

Í fimmta lagi eru aðgerðir hafnarsjóða vegna fyrirhugaðrar sameiningar. Þar er lagt til að greiðsluþátttaka ríkissjóðs skuli ákveðin með sérstöku samkomulagi milli viðeigandi hafnarsjóða annars vegar og ríkisins hins vegar.

Þá er lagt til, virðulegur forseti, að heimilt verði að veita viðbótarframlag úr ríkissjóði til lítilla hafnarsjóða innan skilgreinds byggðasvæðis samkvæmt ákvörðunum Eftirlitsstofnunar EFTA með tekjur undir 40 millj. kr. og þar sem verðmæti meðalafla síðustu ára eru undir 1 milljarði kr. Viðbótarframlag þetta getur orðið allt að 15%.

Skilyrði fyrir úthlutun ríkisstyrkja verði þau að um sé að ræða framkvæmd sem hefur mikla þýðingu fyrir almannahagsmuni á viðkomandi stað, viðkomandi höfn hafi skilað jákvæðum rekstrarafgangi að teknu tilliti til vaxta eða hafi nýtt kosti sína til tekjuöflunar með eðlilegum hætti og að framlag ríkissjóðs raski ekki samkeppni milli hafna.

Þá er í þessu frumvarpi mælt fyrir um heimild ráðherra til að útfæra nánar ákvæði laganna í reglugerð, en í gildandi lögum er ekki að finna slíka heimild.

Hæstv. forseti. Ég hef gert grein fyrir helstu atriðum frumvarpsins og einnig því að tekið hefur verið mið af þeim tillögum til breytinga sem komu frá þingnefndinni sem um málið fjallaði. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og síðan til 2. umr.