131. löggjafarþing — 53. fundur, 8. des. 2004.
Háskóli Íslands.
348. mál
[22:41]
Dagný Jónsdóttir (F) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil bara ítreka það hér að þess eru fjölmörg dæmi að hv. þingmenn skrifi upp á nefndarálit með fyrirvara og með því er ég ekki að skuldbinda mig til að styðja mál í þingsal. Við sjáum nú bara dæmi þess í kvöld (Gripið fram í.) að þingmenn voru með á nefndaráliti með fyrirvara og sátu hjá.
Ég er feginn því að hv. þm. Mörður Árnason skuli ekki vera mér sammála því þá er ég þess fullviss að ég er á réttri leið.