141. löggjafarþing — 58. fundur, 20. des. 2012.
fjárlög 2013.
1. mál
Virðulegur forseti. Tillögur um lækkanir gjalda á almenning eru auðvitað ekki til skammar og efnisleg umfjöllun hefur farið fram um ráðstafanir í ríkisfjármálum í efnahags- og viðskiptanefnd. Og efnisleg umræða mun fara fram um tillögurnar síðar í dag í umfjöllun um frumvarpið um ráðstafanir í ríkisfjármálum, en ég taldi rétt að greina frá efni þeirra hér og ætla ekki í frekari umræður um efni þeirra undir þessum lið.