144. löggjafarþing — 65. fundur,  16. feb. 2015.

varamaður tekur þingsæti.

[15:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að 2. þm. Reykv. s., Vigdís Hauksdóttir, geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.