151. löggjafarþing — 65. fundur, 11. mars 2021.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 797, um viðbrögð við dómi um uppgreiðslu Íbúðalánasjóðslána, frá Ólafi Ísleifssyni, og á þskj. 868, um lóðaleigu í Reykjanesbæ, frá Birgi Þórarinssyni.