143. löggjafarþing — 67. fundur, 24. feb. 2014.
stjórnartillaga um slit aðildarviðræðna við ESB.
Forseti taldi það eðlilegt á föstudaginn að setja þetta mál á dagskrá í dag. Hins vegar hlýddi forseti jafnframt á athugasemdir sem bárust, fyrst á fundi þingflokksformanna og síðar á fundi forsætisnefndar, og taldi skynsamlegt, líka til þess að leita sátta um málsmeðferðina, að taka málið af dagskrá og tilkynnti það áðan í upphafi þingfundar.