143. löggjafarþing — 69. fundur, 26. feb. 2014.
um fundarstjórn.
Forseti vill að þessu gefnu tilefni og öðrum segja að hér liggur fyrir ansi myndarleg dagskrá. Eins og mál standa nú er augljóst mál að það mun bætast mjög í þessa dagskrá á morgun. Það liggur ljóst fyrir.
Í öðru lagi (Gripið fram í.) er hér um að ræða mál sem kallað hefur verið eftir að fái eðlilega umræðu. Umræða hefur staðið hér yfir frá því í síðustu viku og forseti telur þess vegna fullt tilefni til þess að halda kvöldfund um málið.