140. löggjafarþing — 72. fundur, 13. mars 2012.
almenn hegningarlög.
137. mál
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir því frumvarpi sem forseti kynnti. Það hefur áður verið lagt fram á Alþingi og fyrir því mælt og ég vísa til fyrri ræðu minnar við þá framlagningu um efni málsins. Í meginatriðum lýtur það að því að auka heimildir yfirvalda til að haldleggja ólögmætan hagnað af ólöglegri starfsemi.