störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í Borgunarmálinu er staðan að verða flóknari og flóknari með hverjum deginum sem líður. Stjórnendur Landsbankans hafa orðið margsaga í málinu, en sífellt fleiri spurningar vakna um hlut stjórnenda Borgunar í þessu máli öllu saman og eigenda þess félags. Það er gríðarlega mikilvægt að öllum steinum verði snúið við í málinu, að Bankasýsla ríkisins fái ítarlegar skýringar og að við tökum málið síðan fyrir í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Það er augljóst vegna þess að fram undan er mikil sala á ríkiseignum og skiptir máli að ekki verði gerð sömu mistök og við söluna á eignarhlutnum í Borgun. Það er ekki síður mikilvægt til þess að upplýsa um þau siðferðisviðmið og þá samskiptahætti sem tíðkast í efstu lögum í íslensku fjármálakerfi. Það skiptir máli að upplýsa og uppræta.
Fjármálakerfið í heild þarf að fá yfirhalningu. Við þurfum endurmat. Það er fullkomlega ótímabært við núverandi aðstæður að hefja sölu á einstökum hlutum af bönkum í eigu ríkisins. Þvert á móti er ástæða til þess að nýta tækifærið sem við erum nú loksins að fá til þess að raða spilunum upp á nýtt. Okkur gafst ekki færi á því að gera það í kjölfar hruns vegna þess að landið var í efnahagslegri herkví og mikið reið á að tryggja að bankakerfið virkaði yfir höfuð. Núna fáum við tækifæri til þess að raða spilunum upp á nýtt, tryggja samfélagslega ábyrgt bankakerfi og að tryggja að bankakerfið endurspegli þarfir þjóðarinnar, heimila og fyrirtækja, en sjúgi ekki verðmæti af heimilunum og fyrirtækjunum um ókomna tíð.
Tengd mál
- Sala á eignarhlut Landsbankans hf. í Borgun hf. og Valitor hf., 472. mál, fyrirspurn til skrifl. svars.
- Verðmat á hlut Landsbankans í Borgun, 477. mál, fyrirspurn.
- Sala Landsbankans á Borgun, B517. mál, óundirbúinn fyrirspurnatími.
- Sala Landsbankans á hlut sínum í Borgun, B529. mál, óundirbúinn fyrirspurnatími.
- Söluferli Borgunar, B599. mál, óundirbúinn fyrirspurnatími.