151. löggjafarþing — 79. fundur,  15. apr. 2021.

um fundarstjórn.

[14:40]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Já, ég hef tjáð mig um það sem hefur verið birt í fréttum um umrædda skýrslu enda hefur það verið fjölmargt. Í gær birtust skyndilega fréttir á öllum vefmiðlum um innihald skýrslunnar, mjög ítarlegar fréttir. Sú sem hér stendur er hvorki í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd né umhverfis- og samgöngunefnd þar sem nefndarfólk hefur fengið umrædda skýrslu. Ég hvet hæstv. ráðherra til að lesa fjölmiðla af því að þar er greinilega mjög margt að finna sem ég held að hæstv. ráðherra ætti að líta á og taka alvarlega.