140. löggjafarþing — 80. fundur, 29. mars 2012.
ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
636. mál
Virðulegi forseti. Ég skil ekki alveg spurninguna. Ég ætla ekki að blanda forsetakosningum inn í þetta mál hér. Þegar ég tala fyrir þessari þjóðaratkvæðagreiðslu ætla ég ekki að tala um einstaka frambjóðendur til forsetaembættis þannig að ég verð að láta þingmanninn einan um það í þessum sal.