145. löggjafarþing — 84. fundur, 2. mars 2016.
fullnusta refsinga.
332. mál
Virðulegi forseti. Samkvæmt umsögn sem barst nefndinni hefur enginn nema lögregla heimild til að flytja inn eða eiga þau varnartæki sem nefnd eru í ákvæðinu. Því teljum við það ekki geta staðist lög óbreytt og þess vegna er þessi breytingartillaga fram komin, sem lítur því miður út fyrir að verði felld.