151. löggjafarþing — 86. fundur,  27. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:28]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Ef þingmaður getur farið með almannafé og þarf að beita til þess sinni eigin dómgreind þá segir það sig sjálft að þingmaður getur misnotað það vald. Ef annar þingmaður sem er í stjórnarandstöðu kallaði eftir rannsókn á því hvernig stjórnarþingmaður fer með almannafé þá er stjórnarandstöðuþingmaðurinn sekur um brot á siðareglum Alþingis. Þetta er staðan sem við búum við í dag. Þegar við settum okkur siðareglur var það í þeirri von að það myndi bæta störf okkar, ekki að skýla meiri hlutanum fyrir aðhaldi minni hlutans. En það er staðan sem við búum við í dag.

Annað dæmi um misheppnaðar siðareglur er hjá Ríkisútvarpinu þar sem blaðamaður að nafni Helgi Seljan dirfðist að tjá skoðanir sínar opinberlega. Það var kært af fyrirtæki sem heitir Samherji og hefur orðið fyrir mikilli umfjöllun frá téðum blaðamanni. Samherji kærir mjög marga starfsmenn Ríkisútvarpsins fyrir brot á siðareglum og eftir stendur að tekið er undir það að Helgi Seljan, hæstv. blaðamaður, hafi brotið siðareglur um að tjá sig á almannafæri um sínar eigin pólitísku skoðanir. Ekki fyrir það að segja ósatt, ekki fyrir óvönduð vinnubrögð í sínum fréttaflutningi heldur fyrir það eitt að tjá sig.

Bæði þessi dæmi, virðulegi forseti, eru einkenni þess að við búum í þöggunarmenningu og höfum að mínu viti alltaf gert. Hún er svo rótgróin og svo djúpstæð að við sjáum hana ekki einu sinni, klöppum okkur jafnvel á bakið fyrir að búa í samfélagi þar sem tjáningarfrelsið sé svo mikils virt.

Virðulegi forseti. Svo er ekki og það sanna dæmin.