mannabreytingar í nefndum.
Forseta hefur borist eftirfarandi tilkynning, dagsett 18. september 2014, frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins um mannabreytingar í nefndum þingsins, sbr. 16. gr. þingskapa:
Unnur Brá Konráðsdóttir tekur sæti Ragnheiðar Ríkharðsdóttur sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Brynjar Níelsson taka sæti Unnar Brár Konráðsdóttur og Elínar Hirst sem aðalmenn í velferðarnefnd.
Elín Hirst tekur sæti Brynjars Níelssonar sem aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.