143. löggjafarþing — 91. fundur, 7. apr. 2014.
leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
485. mál
Virðulegi forseti. Það er ágætt. Mér heyrist við hv. þingmaður hafa ýmsa snertifleti í því hvernig best sé að reka hér samfélag og gera það á félagslegum grunni. Mér heyrist hins vegar okkur greina á um það hvort það frumvarp sem er til umræðu hér í kvöld gagnist í þeirri viðleitni og ég hef mínar efasemdir um það.