72. fundur
atvinnuveganefndar á 140. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 24. maí 2012 kl. 09:21


Mættir:

Kristján L. Möller (KLM) formaður, kl. 09:21
Björn Valur Gíslason (BVG), kl. 09:21
Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 09:21
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 09:21
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:21
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 09:21
Sigmundur Ernir Rúnarsson (SER), kl. 09:21

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) 727. mál - áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða Kl. 09:21
Nefndin fundaði sameiginlega með umhverfis- og samgöngunefnd um málið og mættu ÞBach, MÁ, AtlG og GLG til fundarins af hennar hálfu. ÁJ tilkynnti forföll af persónulegum ástæðum.
Á fund nefndanna kom Ólafur Darri Andrason frá Alþýðusambandi Íslands. Gesturinn kynnti nefndunum afstöðu sambandsins til þingmálsins og svaraði spurningum nefndarmanna að því loknu.

2) Önnur mál. Kl. 10:00
SIJ og ÞSa voru fjarverandi.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.


Fundi slitið kl. 10:00