32. fundur
velferðarnefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 15. maí 2017
kl. 09:15
Mættir:
Nichole Leigh Mosty (NicM) formaður, kl. 09:15Vilhjálmur Árnason (VilÁ) 1. varaformaður, kl. 09:15
Hildur Sverrisdóttir (HildS) 2. varaformaður, kl. 09:15
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:15
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:15
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:15
Ingibjörg Þórðardóttir (IÞ) fyrir Steingrím J. Sigfússon (SJS), kl. 09:15
Jóna Sólveig Elínardóttir (JSE), kl. 09:15
Halldóra Mogensen var fjarverandi vegna veikinda.
Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:15
Fundargerðir 29., 30. og 31. fundar voru samþykktar.
2) 433. mál - sjúklingatrygging Kl. 09:15
Dagskrárlið frestað.
3) 440. mál - húsnæðissamvinnufélög Kl. 10:15
Á fund nefndarinnar mættu Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir og Linda Fanney Valgeirsdóttir frá velferðarráðuneytinu. Kynntu þær málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
4) 62. mál - heildstæð stefna í málefnum einstaklinga með heilabilun Kl. 10:37
Nefndin fjallaði um málið.
5) Önnur mál Kl. 10:38
Fleira var ekki gert á fundinum.
Fundi slitið kl. 10:38