Samantekt um þingmál

Hlutafélög o.fl.

677. mál á 141. löggjafarþingi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.

Markmið

Að sporna gegn kennitöluflakki.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að lágmarksfé í hlutafélögum verði hækkað úr 4 milljónum í 6 milljónir kr. og lágmarkshlutafé einkahlutafélaga verði hækkað úr 500 þúsundum í 750 þúsund kr. Þá er lagt til að Hlutafélagaskrá fái heimild til að krefjast skipta á búi félaga sem ekki hafa skilað ársreikningum fyrir þrjú síðustu reikningsár og verði jafnframt heimilt að sekta þau. Falli félag í vanskil er heimilt að ganga beint að stjórnamönnum.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, nr. 138/1994, um einkahlutafélög og nr. 3/2006, um ársreikninga .

Kostnaður og tekjur

Kostnaður ríkissjóðs gæti orðið allt að 180 milljónum króna á ári vegna skiptakostnaðar og 6 milljónir vegna aðgerða Hlutafélagaskrár, þ.e. 186 milljónir, en til þessa þarf fjárheimildir á fjárlögum, sem ekki eru til staðar nú.

Aðrar upplýsingar

Greinargerð starfshóps til að vinna tillögur að lagabreytingum og aðgerðum til að verjast kennitöluflakki og til að ná markmiðum laga um jöfnun kynja í stjórnum fyrirtækja (2013). [Reykjavík. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið].


Síðast breytt 19.03.2013. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.