Dómstólar o.fl.
470. mál á 150. löggjafarþingi.
Dómsmálaráðherra.
Markmið
Að setja á stofn nýjan dómstól, Endurupptökudóm, sem kæmi í stað endurupptökunefndar.Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að endurupptökunefnd verði lögð niður og að settur verði á fót sérdómstóll sem skera á úr um hvort heimila skuli endurupptöku mála sem dæmd hafa verið í héraði, Landsrétti eða Hæstarétti. Gert er ráð fyrir að dómendur í þeim dómstól yrðu fimm: einn frá hverju dómstigi auk tveggja annarra sem skipaðir skulu samkvæmt tillögu dómnefndar og skulu þeir fullnægja skilyrðum til að hljóta skipun í embætti hæstaréttardómara og ekki vera fyrrverandi eða starfandi dómarar eða starfsmenn dómstóls. Jafnframt er lagt til að heimilt verði að endurupptaka mál oftar en einu sinni og að skilyrði fyrir endurupptöku einkamála verði rýmkuð.Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um dómstóla, nr. 50/2016.- Endurflutt: Dómstólar o.fl., 70. mál (dómsmálaráðherra) á 149. þingi (14.09.2018)
- Endurflutt: Dómstólar o.fl., 442. mál (dómsmálaráðherra) á 148. þingi (23.03.2018)
Kostnaður og tekjur
Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð.Afgreiðsla
Samþykkt með minni háttar breytingum.Aðrar upplýsingar
Löggjöf á Norðurlöndum
Danmörk
Bekendtgørelse af lov om rettens pleje (Retsplejeloven) LBK nr 938 af 10/09/2019.