Kosningar til sveitarstjórna
272. mál á 151. löggjafarþingi.
Kolbeinn Óttarsson Proppé.
Markmið
Að lækka kosningaaldur í 16 ár í sveitarstjórnarkosningum.Helstu breytingar og nýjungar
Lagt er til að hver íslenskur ríkisborgari sem hefur náð 16 ára aldri á kjördag í sveitarstjórnarkosningum fái kosningarrétt. Einnig er gert ráð fyrir að ríkisborgarar Norðurlandanna, sem hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag, og aðrir erlendir ríkisborgarar, sem átt hafa lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt fyrir kjördag, og náð hafa 16 ára aldri á kjördag eigi kosningarrétt í sveitarstjórnarkosningum.Breytingar á lögum og tengd mál
Lög um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998.- Endurflutt: Kosningar til sveitarstjórna, 356. mál (AIJ) á 149. þingi (14.11.2018)
- Endurflutt: Kosningar til sveitarstjórna, 40. mál (AIJ) á 148. þingi (16.12.2017)
- Endurflutt: Kosningar til sveitarstjórna, 65. mál (KJak) á 147. þingi (26.09.2017)
- Endurflutt: Kosningar til sveitarstjórna, 190. mál (KJak) á 146. þingi (22.02.2017)
- Skylt mál: Kosningalög, 498. mál (OPJ) á 153. þingi (24.11.2022)