Ferill 208. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 208 . mál.


Nd.

991. Frumvarp til laga



um breytingar á erfðalögum, nr. 8 14. mars 1962, með síðari breytingum.

(Eftir eina umr. í Ed., 2. maí.)



    Samhljóða þskj. 973 með þessari breytingu:

    16. gr. hljóðar svo:
    Við lögin bætist ný grein, 63. gr., svohljóðandi:
    Ákvæði 1. mgr. 3. gr., 7.10. gr., 16. gr. og 31. gr., eins og þeim er breytt frá 1. júní 1989, gilda ekki um lögerfðarétt, um setu í óskiptu búi eða um uppgjör fyrirframgreidds arfs eftir menn sem látnir eru fyrir þann tíma.
    Meðan lög um skipan dómsvalds í héraði, lögreglustjórn, tollstjórn o.fl., nr. 74/1972, eru enn í gildi skulu þeir menn, sem eru skiptaráðendur samkvæmt fyrirmælum þeirra laga, gegna því hlutverki sem sýslumönnum er falið með lögum þessum.